Svo virðist sem fasteignamarkaðurinn sé að þróast úr seljandamarkaði yfir í kaupendamarkað. Framboð á eignum hefur aukist verulega á síðustu vikum.
Undanfarin 2 ár hafa að jafnaði verið um 400-600 eignir verið auglýstar til sölu á stóru fasteignavefunum en er sem stendur rétt um 1000. Eins er áberandi að heimssóknir á fasteignavefina er enn mjög mikil og því virðist áhuginn vera töluverður
Sem dæmi er um 140 einbýlishús auglýst til sölu og 670 íbúðir í fjölbýlishúsi. En mjög fáar nýbyggingar eru auglýstar til sölu en búist er við aukning á nýbyggingum í vetur
Markaðurinn virðist þrátt fyrir fréttaflutning enn vera á góðu skriði þar sem fasteignaverð hækkaði um 1.1% í júlí mánuði og hefur hækkað um 15.5% síðustu 6 mánuði og yfir 25% síðustu 12 mánuði og því verður áhugavert að fylgjast með markaðnum á næstu mánuðum