Heim
Söluskrá
Um okkur
Verðmat
Gjaldskrá
Eignavakt
Eignavakt
Hafa samband
Góð ráð
English
Pálsson invest
Borgartún 3, 105 Reykjavík
+354 775 4000

Góð ráð

Ertu í söluhugleiðingum?

Hverjar eru ástæður þess að sumar fasteignir seljast hratt og á háu verði, jafnvel yfir ásettu verði en aðrar eignir sitja lengi á markaðnum og enda með því að seljast undir markaðsverði?

Þegar þú ætlar að setja fasteign í sölu þá eru 30-40 atriði sem hafa áhrif á verð.
Fáðu fría ráðgjöf

Hvernig færðu besta verðið fyrir eignina þína?

Hverjar eru ástæður þess að sumar fasteignir seljast hratt og á háu verði, jafnvel yfir ásettu verði en aðrar eignir sitja lengi á markaðnum og enda með því að seljast undir markaðsverði?

Það fyrsta sem seljendur verða að hafa í huga er að því fleiri sem skoða eignina, því hraðar selst hún og á hærra verði. Það eru þúsundir eigna á fasteignavefjum á Íslandi sem hvorki seljast né skapa fyrirspurnir. Fæstir átta sig á því að meðaltíminn á söluskrá í janúar 2018 voru nærri 70 dagar. Hvað þarf að gerast svo fleiri en einn bjóði í eignina á sama tíma? Hvernig færðu sem flesta til að skoða eignina og gera tilboð? Hvernig færðu besta verðið?
1. Verðlagning - Mikilvægt er að hafa rétt ásett verð

Fáðu heiðarlegt(faglegt) verðmat frá fasteignasalanum þínum. Ekki hlusta á fasteignasala sem verðmeta bara eftir því sem þú vilt heyra. Helsta ástæða þess að fólk skoðar ekki eignina þína er vegna þess að eignin er verðlögð of hátt. Verðlegðu á réttu markaðsverði til að vekja áhuga tilvonandi kaupenda. Ekki fara í „mér finnst“ eða „ég held“ að verðið sé hitt og þetta fyrir eignina. Byggðu matið á sölutölum og fermetraverði í hverfinu og berðu eignina þína saman við eignir sem eru þegar í sölu og athugaðu hvernig gengur að selja þær o.s.frv. Við notumst við 5-10 aðferðir til að áætla hvað verðið á eigninni þinni ætti að vera og komum með tillögur um ásett verð. Það er enginn að hjálpa þér með því að segja bara það sem þú vilt heyra. Í mörgum tilfellum eruvæntingar seljenda mun meiri en markaðsverð gefur til kynna.

2. Markaðssetning

96% af þeim sem eru að leita að eignum skoða fasteignavefi og því eru góðar og fallegar myndir af eigninni lykilatriði. Myndir eru það fyrsta sem fólk sér af eigninni þinni og því er mikilvægt að þær séu teknar af fagaðila.

Auglýsingar í blöðum skila ekki eins miklum árangri og áður fyrr og því ber að fara varlega í þann kostnað. Þó er til undantekningar á þessu t.d. íbúðir sem hugsaðar eru fyrir 65 ára og eldri.

Opið hús: Nær 80% af smellum á eignina þína á netinu eru fyrstu 4-6 dagana. Mikilvægt er því að nota þann tíma til að auglýsa opið hús. Opin hús hafa reynst vel til að búa til spennu um eignina. Þegar eignin er komin á netið þá er um að gera að deila eigninni á samfélagsmiðlum og biðja vini og vandamenn um að deila. Best er að sýna eignina í dagsbirtu.

3. Ásýnd eignarinnar

Eignin hefur í raun mjög skamman tíma til að heilla væntanlega kaupendur. Fasteignaleitendur eru að miklu leyti búnir
að mynda sér skoðun á eigninni við það að keyra að henni. Því er mikilvægt að ásýnd eignarinnar sé upp á sitt besta.

Taktu til í garðinum, innkeyrslu og fjarlægðu alla óþarfa hluti. Klipptu runna og sláðu garðinn að sumri til. Ef snjór hefur fallið skal einnig moka aðkomu hússins.

Gakktu langt í að gera allt hreint og fínt. Lykt er lykilatriði því það er það fyrsta sem fólk tekur eftir þegar gengið er inn.

Fjarlægðu alla óþarfa hluti af gólfum, smáhluti af eldhúsbekkjum og segla, miða og annað af ísskápum.

Skoðaðu lýsingu rýmisins. Dragðu frá gardínur og reyndu að hleypa inn eins mikilli náttúrulegri birtu og mögulegt er. Einnig skaltu skipta um allar sprungnar perur og fela rafmagnssnúrur.

4. Ástand eignar

Vertu viss um að eignin sé upp á sitt besta þegar hún fer í sölu. Fólk prúttar síður um verð ef allt er í lagi.Hafðu eftirfarandi atriði í huga:

Ástand á húsi, raka, rakamæla, ástandsskoðun, lagnir, múr, þak, glugga, gler, leka, minniháttar viðgerðir, sökkla á innréttingum og fjarlægðu reykingalykt. Þarf að gera við eitthvað? Lagaðu málningu þar sem þarf, settu gólflista þar sem þá vantar og annað tilfallandi.

Haltu þig við stutta og hnitmiðaða lýsingu : Góð lýsing á eigninni í söluyfirliti er mikilvæg en ekki fara út í of mikil smáatriði.

Láttu fasteignasala sýna eignina. Það hefur margoft sannað sig að fólk sem skoðar eignir með eigendum er hlédrægara þegar kemur að því að tjá sig um kosti og galla eignarinnar af ótta við að móðga eigendur. Best er að heyra sannleikann svo einfaldara sé að loka sölunni.

Ertu að hugsa um að kaupa fasteign?

Hafa ber í huga að oft getur munað miklu á auglýstum verðum og hinu raunverulega söluverði og því afar mikilvægt að kynna sér bæði ástand og verðið vel áður en gert er tilboð. Hafðu samband við að fá ráðgjöf ( frítt ) um kaup á fasteign. Í lögum um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupendum fasteigna á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu fría ráðgjöf

Góð ráð fyrir kaupendur

Í lögum um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir kaupendum fasteigna á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Pálsson fasteignasala hvetur alla sem skoða fasteignir að kynna sér eftirfarandi þætti við skoðun fasteigna:
Fáðu fría ráðgjöf

01

Rafmagn
Búast má við 40-50 ára líftíma rafmagns. Athuga tengla, rafmagnstöflu og ástand.

02

Ofnar og ofnalagnir
Búast má við 35-45 ára líftíma. Virka allir ofnar? Tími sem það tekur þá að hitna? Hefur lekið frá ofnum?

03

Neysluvatnslagnir
Rennsli á heita og kalta vatninu. Tími sem það tekur þá að hitna. Athuga hvort litur vatnsins sé eðlilegur. Óstöðugt vatnsrennsli segir margt ástand vatnslagna hússins.

04

Skólp
Búast má við 50-60 ára líftíma. Gott að spyrja um ástand og hvort það hafi verið endurnýjað eða fóðrað.Dren: Spyrja hvort það hafi verið drenað.

05

Gólfefni
Gefa ástandi gólfefna athygli hvort um er að ræða parket, flísar, kork eða önnur gólfefni.

06

Þak
Skoða sperrur, járn, athuga raka eða lykt.

07

Fá upplýsingar um eftirfarandi
- Fyrirhugaðar eða yfirstandandi framkvæmdir
- Fá húsfélagsyfirlýsingu.
- Athuga hvað mikið er til í framkvæmdarsjóð
- Fá afrit af fundargerðum í húsfélögum
- Raki, leki, mygla

08

Gluggar
Skoða timburumbúnað, gler, opnanleg fög, stormjárn, móða á milli glerja, tvöfalt, einfalt eða mixað gler? Hurðar: Eru allar hurðir í lagi?

09

Skápar
Hvernig eru innvols og eru skemmdir að innavörðu.

10

Eldhústæki
Skoða vel tæki sem fylgja með í eldhúsi og spyrja um aldur þeirra
Prenta listann
Hafðu samband til að fá aðstoð við sölu eða ráðgjöf við fasteigna eða fyrirtækjaviðskipti.
Takk fyrir, skilaboðin hafa verið send.
Oops! Something went wrong while submitting the form.

Heima er best

Hafa samband
Heim Söluskrá Um okkur Verðmat Gjaldskrá Eignavakt Hafa samband Góð ráð English Pálsson invest
Pálsson fasteignasala ehf.Borgartún 3, 105 Reykjavík© Allur réttur áskilinn
Facebook