Kinnargata 34, 210 Garðabær 199.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herbergi
243 m2
199.000.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2020
  • Brunabótamat 133.250.000
  • Fasteignamat 184.050.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

-- EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA --

Stórglæsilegt fjölskyldu endaraðhús á frábærum stað í Urriðaholti. Eignin getur verið laus fljótlega. 

- Hægt er að bóka einkasýningu með því að senda póst á [email protected] -

* Glæsilegt útsýni yfir Urriðavatn
* 4 svefnherbergi, tvö baðherbergi
* Möguleiki á að útbúa 31fm aukaíbúð á neðri hæð
* Stór pallur með heitum potti og möguleiki á að bæta við köldum potti
* Byggt 2020 - bæði lóð og hús fullbúið
* Virkilega vönduð eign - sjón er sögu ríkari!
* Sveigjanleg afhending - eignin getur verið laus fljótlega


EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!

Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma  616-2694 [email protected]
******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****


Birt stærð samkv. Þjóðskrá Íslands er 243,4 m2 og þar af er bílskúr 34,9 m2. Fasteignamat 2024 er 184.050.000 kr

Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrting, bílskúr, forstofuherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, svalir, þrjú svefnherbergi, sjónvarpsherbergi/fjölskyldurými, þvottahús, baðherbergi og verönd með heitum potti.

Nánari lýsing:

Efri hæð:
Forstofa með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Forstofuherbergi sem er nýtt sem skrifstofa í dag. 
Bílskúr er 34,9 fm með rafstýrðri bílskúrshurð. Innangengt er í bílskúrinn frá forstofu. Fataskápur, skóskápur, milliloft og innrétting með vask. Epoxy á gólfi í bílskúr.
Gestasnyrting er einstaklega falleg og innréttuð með innréttingum frá Brúnás og fallegum spegli fyrir ofan. Flísar á gólfi og vegg að hluta til.
Eldhús er saman í opnu rými með stofu og borðstofu. Stórt og mikið alrými þar sem er mjög hátt til lofts. Virkilega falleg L-laga eldhúsinnrétting frá GKS með tækjaskáp ásamt veglegri eyju. Ofn, combiofn, helluborð, innbyggð uppþvottavél, innbyggður ísskápur, innbyggður frystir og vínkælir. Steinn frá S. Helgasyni á innréttingu og eyju.
Borðstofa og stofa myndar skemmtilegt flæði við eldhús. Stórir gluggar og fallegt útsýni. Úr borðstofu er gengið út á rúmgóðar suð-vestur svalir (gert ráð fyrir svalalokun á teikningu). 

Neðri hæð:
Teppalagður stigi tengir saman efri og neðri hæð. Á neðri hæðinni er möguleiki á að útbúa aukaíbúð með því að nýta gestasvefnherbergi og sjónvarpshol. Lagnir eru til staðar til þess að setja upp eldhúsinnréttingu og útbúa salerni. 
Hjónaherbergi er rúmgott með fataherbergi. Hægt að ganga út á pall úr hjónaherbergi.
Barnaherbergi með fataskáp.
Gestaherbergi er mjög rúmgott. Þar eru lagnir til staðar svo hægt sé að setja upp salerni ef rýminu yrði breytt í aukaíbúð.
Fjölskyldurými / sjónvarpshol. Sér inngangur er í þetta rými frá palli. Hægt væri að setja upp eldhúsinnréttingu og nýta sem eldhús og stofu ef rýminu yrði breytt í íbúð. Í dag er þetta rými nýtt sem fjölskylduherbergi og væri mjög auðveldlega hægt að útbúa fimmta svefnherbergið.
Baðherbergi er stórglæsilegt, flísalagt í hólf og gólf með veglegri baðinnréttingu, walk-in sturtu og baðkari. Blöndunartæki eru frá VOLA, innrétting frá Brúnás og flísar frá Agli Árnasyni. 
Þvottahús er mjög rúmgott með fallegri innréttingu úr IKEA. Gert ráð fyrir 3 vélum í innréttingunni. 

Um er að ræða stórglæsilegt staðsteypt endaraðhús þar sem vandað hefur verið til og hvergi til sparað. Húsið er hannað af Kristni Ragnarssyni, er vandað sérstaklega til efnisvals, vinnu og hönnunar. Húsið er einangrað að utan og klætt með áli og Brasilísku tekki. 
Vélrænt loftræstikerfi er í húsinu. Lagt hefur verið fyrir myndavélakerfi í húsinu. Gardínur í stofu rafdrifnar. Einstaklega gott skipulag og góð nýting í vönduðum rýmum.

* Mikil lofthæð á efri hæð. Hljóðdempandi loftaþiljur frá Ebson í alrými. 
* Sérsmíðaðar háar innihurðir frá GKS. 
* Innréttingar frá GKS og Brúnás. 
* Parket á gólfi frá Agli Egilssyni. 
* Flísar frá Birgisson og Agli Árnasyni. 
* Baðkar, salerni og vaskar frá Tengi. Hægt að undirlíma báða vaska undir stein. 
* Mótor/appstýrðar screen-gardínur í alrými. 
* Free@Home ljósastýring í öllu húsi. Mjög góð útilýsing í kringum húsið. 
* Stór nýsmíðaður pallur með nýjum heitum potti frá NormX. Sól í garði frá morgni til kvölds yfir sumartímann. Gert er ráð fyrir köldum potti. Appstýrð pottastýring. 

Lóðin er fullfrágengin. Að baka til er stór pallur með heitum potti ásamt hárri skjólgirðingu. Gert er ráð fyrir köldum potti sem auðvelt væri að bæta við. Að framanverðu er hellulögð stétt og innkeyrsla í bílskúr með snjóbræðslu. Rúmgott hellulagt bílaplan með rafmagnshleðslustöð.

Staðsetning góð innan hverfis rétt við Urriðavatn þar sem rými á milli húsa er gott. Golfvöllur og náttúran í næsta nágrenni. Skóli, þjónusta og fjölbreytt verslun í næsta nágrenni.


Smelltu hér fyrir góð ráð fyrir kaupendur
Nýjustu fréttir af fasteignamarkaðnum

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.