Skúlagata 20, 101 Reykjavík (Miðbær) 84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herbergi
100 m2
84.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1997
  • Brunabótamat 53.600.000
  • Fasteignamat 79.700.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og björt 3ja herbergja 100 fm útsýnisíbúð á 4.hæð við Skúlagötu 20 í Reykjavík.
Íbúðin er í góðu lyftuhúsi og er fyrir 60 ára og eldri.
Íbúðin er með aðgengi að þjónustu, félagasstarfi og mötuneyti. Húsvörður er í húsinu.


***Útsýnisíbúð***
***Fyrir félagsmenn eldri borgara, 60 ára og eldri***
***Þjónusta í boði á vegum Reykjavíkurborgar***
***Húsvörður starfandi í húsnæðinu***
***Bílastæði***

Nánari upplýsingar veita:
Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]


Nánari lýsing:
Komið inn í anddyri og þaðan inn í hol með skápum.
Eldhús er með U-laga innréttingu, glugga til norðurs og tengi fyrir uppþvottavél.
Inn af eldhúsi er gott svefnherbergi.
Stofan er rúmgóð og nær í gegnum húsið með stórum gluggum til norðurs og suðurs.
Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum.
Baðherbergi er með sturtu, fallegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Í kjallara er rúmgóð geymsla með glugga.
Mjög fallegt útsýni er því úr íbúðinni, bæði yfir sundin til norðurs og yfir Lindargötu og Holtin til suðurs. Í suður er gengið út á skjólsamar svalir.

Gólfefni:
Parket er á öllum gólfum nema baðherbergi en þar er öryggisdúkur.

Sameign er snyrtileg, meðal annars aðgengi að sameiginlegum svölum á 10.hæð með miklu útsýni til sjávar.
Í sameign er salur á jarðhæð með eldhúskrók, helsta borðbúnaði og salerni sem hægt er að leigja gegn vægu gjaldi.
Húsvörður er starfandi í húsinu og er allt aðgengi til fyrirmyndar. 

Nóg er af bílastæðum á baklóð húsins sem og bílastæðahúsið á Vitatorgi.

Íbúðina má eingöngu selja félagsmönnum í Félagi eldri borgara og er eignin fyrir 60 ára og eldri.
Næst húsinu við aðalinngang, í Lindargötu, rekur Reykjavíkurborg þjónustu fyrir eldri borgara. Þar er ýmis þjónusta í boði, meðal annars fjölbreytt félagsstörf og mötuneyti.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.