Krummahólar 8, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt) 48.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herbergi
88 m2
48.800.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1976
  • Brunabótamat 32.930.000
  • Fasteignamat 47.400.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Rúmgóð og björt 2ja herbergja íbúð í Krummahólum 8 Efra-Breiðholti.

* Útsýni
* Bílastæði í bílageymslu
* Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leiksskóla og útivistarsvæði

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í S: 6631825 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
www.palssonfasteignasala.is

Eignin er skráð samkv. HMS 88,2 fm og þar af er geymsla skráð 5,2 fm og stæði í bílageymslu skráð 23,8 fm.

Nánari lýsing:

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi, svefnherbergi og geymslu.
Forstofa er með fataskáp og parket á gólfi. 
Eldhús er með upprunalegri innréttingu og dúk á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir.
Baðherbergið er með flísum á gólfi. Baðkar með sturtu.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.

Sameiginlegt þvottahús er á 1.hæð.
Sérgeymsla íbúðar á geymslugangi á hæðinni.
Hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð.

Göngufæri er í skóla, leikskóla og íþróttir.  Verslanir og ýmis þjónusta í göngufæri og stutt í útivistarsvæði.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.