Ásbúðartröð 17, 220 Hafnarfjörður 114.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
4 herbergi
148 m2
114.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1947
  • Brunabótamat 60.860.000
  • Fasteignamat 74.750.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Sérhæð í "næstum því nýju húsi" við Ásbúðartröð 17, í Hafnarfirði. Falleg og björt 4ra herbergja, efri sérhæð með bílskúr og sérinngangi.

* Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi
* Möguleiki á að útbúa aukaíbúð eða hjónasvítu á rishæð
* Íbúðin var standsett 2024 og er því alveg endurnýjuð hvað varðar ma. innréttingar, gólfefni, hurðar, ofnakerfi-og lagnir
* Endurnýjað múrkerfi sett utan á húsið og það málað 2024
* Endurnýjaðir gluggar nema þakgluggar
* Endurnýjaðar skólplagnir, neysluvatnslagnir, rafmagnstafla og rafmagn endurnýjað að mestum hluta.
* Settur forhitari í íbúð, aðgengilegur í skáp á baðherbergi
* Laus til afhendingar við kaupsamning
* Neðri hæðin er einnig til sölu, svo afar hentug kaup fyrir tengda aðila td.


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. FÍ er 148,90 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2025 er 76.300.000 kr.

Eignin skiptist í anddyri, gang, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi með þvottaaðstöðu, salerni, 3 svefnherbergi, rishæð og bílskúr.
Gengið er inn teppalagðan stiga.
Gangur er með parket á gólfi.
Stofa / borðstofa eru í tæplega 30 m2 alrými með eldhúsi. Parket á gólfi og útgengt út á svalir.
Eldhús er með L-laga innréttingu með bakarofn, helluborði, viftu, tengi fyrir uppþvottavél og pláss fyrir amerískan ísskáp þar til mótsvið ásamt meira skápaplássi. 
Baðherbergi er flísalagt með mjög rúmgóðri "walk-in" sturtu, upphengdu wc, innréttingu með handlaug, skúffum og háum skáp sem og speglaskáp. Þar eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Svefnherbergi er rúmgott með parket á gólfi og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og innangengt á salerni.
Salerni er flísalagt með upphengdu wc, innréttingu með handlaug og skúffum. 

Möguleiki á að útbúa hjónasvítu / aukaíbúð :
Frá viðarstiga er gengið upp á rishæð sem er í dag óinnréttað þakrými nýtt í dag sem geymsla en geymir mikla möguleika. Búið er að draga upp neysluvatnslagnir, ofnalagnir og skólplagnir svo hægt væri að útbúa hér td. hjónasvítu eða sér-íbúðareiningu. Þar sem fordæmi eru fyrir því í nágrenni að fá samþykkta kvist ofan á hús væri hægt að auka lofthæð og fermetrastærð.

Bílskúr er skráður 28,20 m2 samkv. Fí og er með manngengri hurð, ásamt heitu/ köldu vatni, rafmagni og upphitun.
Einkabílastæði er fyrir framan bílskúr.

Sameiginlegur garður og skemmtileg staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði við svæði sem sér fram á mikla uppbyggingu á komandi árum. Mikil nálægð við verslun og ýmsa þjónustu, Suðurbæjarlaug, leikskóla, skóla og framhaldsskóla svo fátt eitt sé nefnt.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.