Holtagerði 3, 200 Kópavogur 59.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
3 herbergi
70 m2
59.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1980
  • Brunabótamat 33.150.000
  • Fasteignamat 52.600.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallega endurnýjaða 2-3ja herbergja, 70,3m2, íbúð með sér inngangi á jarðhæð í tvíbýlishúsi við Holtagerði í Kópavogi.
Íbúðin er skráð 70,3 fm en er í raun um 84 fm þar sem óskráð aukarými getur nýst sem herbergi.

***Endurnýjuð íbúð***
***Sérinngangur***
***Góð staðsetning***

Hörður Sverrisson, lgf s 899-5209, [email protected] veitir nánari upplýsingar.

Lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð og með fatahengi. 
Eldhús er rúmgott og bjart, með ljósri innréttingu og ágætum eldhústækjum. 
Stofa er rúmgóð og opin við eldhús
Svefnherbergin eru tvö. Annað með glugga en hitt gluggalaust.
Baðherbergi hefur verið tekið í gegn, flísar á gólfi, veggir eru með ljósu háglansandi efni og með nýlegu salerni, baðkari, vaski og blöndunartækjum . 
Þvottahús er gott og nýtist einnig sem geymsla.

Gólfefni: Plastparket og flísar.
Snyrtilegur sér garður fyrir fram hús tilheyrir íbúðinni ásamt tveimur bílastæðum.
Húsið er í góðu ástandi og hefur verið vel hugsað um það.
Íbúðin er á góðum stað í vesturbæ Kópavogs þar sem stutt er í alla þjónustu, verslun, skóla og leikskóla.
Gönguleiðir á Kársnesinu eru í næsta nágrenni.
 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.