Hamrar 6, 276 Kjós 34.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herbergi
52 m2
34.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1993
  • Brunabótamat 24.750.000
  • Fasteignamat 23.350.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallegan 52,1 fm. sumarbústað á einni hæð með millilofti við Hamra 6 í Eilífsdal í Kjósarhreppi.
Húsið er á svæði þar sem læst hlið er inn á svæðið. Stórbrotið útsýni er frá bústaðnum til fjalla og sjávar.
Húsið stendur á gróinni leigulóð sem er skráð 5.432 fm. 


Nánari upplýsingar veitir:
Hörður Sverrisson Lgf. í síma nr 899-5209 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]


 
Lýsing eignar:
Forstofa með skápum og harðparketi.
Eldhús og stofa er í opnu rými.  Eldhúsinnrétting var endurnýjuð 2021 og er á einum vegg, innbyggð uppþvottavél sem fylgir.
Stofan er rúmgóð og björt með góðri lofthæð og útgengt er á pall sem nær allan hringinn, kamína í stofu. 
Svefnherbergin eru tvö og annað með skápum. 
Baðherbergi er með sturtu, hvítri innréttingu og opnanlegum glugga. 
Fataherbergi er á gangi.

Gólfefni: Harðparket

Útigeymsla fylgir þar sem er tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt frystikistu. Undir bústaðnum er opið geymslurými.
Hitaveita er í húsinu, var tekin inn í ágúst 2021 og einnig var sett upp demantsrotþró fyrir rúmu ári síðan.
Vatnslagnir voru endurnýjaðar að hluta þegar klósett var fært, ný innrétting sett á baði og eldhúsinnréttingin var stækkuð og einnig voru allar ofnalagnir endurnýjaðar þegar hitaveitan var tekin inn. og Ljósleiðari var tekinn inn 2021 og sett upp bílahleðsla og tekið inn 3ja fasa rafmagn. 

Fallegt og rólegt fjölskylduumhverfi með skemmtilegu leiksvæði innan sumarbústaðasvæðisins.
Fjölbreytt aðstaða er til útivistar í næsta nágrenni eins og göngur inn Eilífsdalinn og að Meðalfellsvatni, fjallgöngur, klettaklifur í Valshamri og íssklifur inni í Eilífsdalnum.
Sumarbústaðalandið er afgirt, og komið er inn um rafmagnshlið sem aðeins íbúar hafa aðgengi að. Sveitafélagið Kjósarhreppur er með ýmsar bæjarhátíðir og uppákomur, eins og Kátt í Kjós að sumri og Þorrablót að vetri í Félagsgarði, samkomuhúsi Kjósverja, og fjölmennur brekkusöngur er við Kaffi Kjós um verslunarmannahelgina.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.