Ásbúðartröð 17, 220 Hafnarfjörður 99.500.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
4 herbergi
132 m2
99.500.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1947
  • Brunabótamat 51.960.000
  • Fasteignamat 70.350.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Nýstandsett fjögurra herbergja neðri sérhæð með verönd, sérinngangi og bílskúr við Ásbúðartröð 17, í Hafnarfirði. 
Húsið hefur fengið mikla endurnýjun sl. ár.

* Sérafnotareitur til suðurs, vesturs og austurs 
* Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi
* Íbúðin var standsett 2024 og er því alveg endurnýjuð hvað varðar ma. innréttingar, gólfefni, hurðar, ofnakerfi-og lagnir
* Endurnýjað múrkerfi sett utan á húsið og það málað 2024
* Endurnýjaðir gluggar nema þakgluggar
* Endurnýjaðar skólplagnir, neysluvatnslagnir, rafmagnstafla og rafmagn endurnýjað að mestum hluta.
* Settur forhitari í íbúð, aðgengilegur í skáp á baðherbergi.
* Efri hæðin er einnig til sölu, svo afar hentug kaup fyrir tengda aðila td.


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. FÍ er 132,30 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2025 er 71.900.000 kr.

Eignin skiptist í anddyri, gang, stofu / borðstofu, eldhús, baðherbergi, salerni, 3 svefnherbergi, geymsla og bílskúr.
Andyri / gangur er með flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa er með gluggum í tvær áttir og parket á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi og L-laga innréttingu með bakarofn, helluborði, viftu, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti, ásamt góðu skápaplássi þar til móts við. Útgengi út í garð og tilgreinda sérafnotarétt íbúðar.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parket á gólfi og gluggum á tvo vegu.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi, nýtt sem skrifstofa í dag.
Baðherbergi er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu wc, innréttingu með handlaug, skúffum og háum skáp sem og speglaskáp. Þar eru tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Salerni er flísalagt með upphengdu wc, innréttingu með handlaug og skúffum. 
Geymsla er innan íbúðar.

Bílskúr er skráður 28,20 m2 samkv. Fí og er með rafdrifinni hurð, ásamt heitu/ köldu vatni, rafmagni og upphitun.
Einkabílastæði er fyrir framan bílskúr.
Sérafnotareitur er við inngang íbúðar, L-laga til suðurs og austurs og svo einnig til vesturs frá eldhúsi.

Sameiginlegur garður og skemmtileg staðsetning miðsvæðis í Hafnarfirði við svæði sem sér fram á mikla uppbyggingu á komandi árum. Mikil nálægð við verslun og ýmsa þjónustu, Suðurbæjarlaug, leikskóla, skóla og framhaldsskóla svo fátt eitt sé nefnt.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.