Hraunbær 182-186, 110 Reykjavík (Árbær) 54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herbergi
69 m2
54.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1968
  • Brunabótamat 35.950.000
  • Fasteignamat 48.050.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og stílhrein 3ja herbergja íbúð sem er töluvert endurnýjuð á 1. hæð við Hraunbæ 182-186 í Árbæ. Góð eign fyrir einstakling sem vill pláss eða par með barn. Sameiginlegur garður með leiktækjum. Örstutt í verslun, þjónustu og skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir.
 
* Eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð 2020.
* Baðherbergi endurnýjað 2020
* Rafmagnsefni endurnýjað 2020.
* Gólfefni endurnýjuð 2020.
* Sér merkt stæði og hleðslustæði á bílaplani.


Samkv. Fasteignskrá Íslands er eignin skráð 69,1 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2025 er 48.050.000 kr.
 
Nánari lýsing :
Anddyri er með flísar á gólfi og hengi fyrir yfirhafnir á vegg.
Hol sen er við hið barnaherbergis er með innbyggðum opnum skáp. Harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með innbyggðum opnum skápum. Harðparket á gólfi.
Herbergi með harðparket á gólfi.
Stofan er opin og björt í sameiginlegu rými með eldhúsi. Útgengt á góða vesturverönd sem eru meðfram allri framhlið íbúðarinnar. Harðparket á gólfi.
Eldhús með stórri hvítri eldhúsinnrétting, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, ofn í vinnuhæð og eyja með spanhelluborði. Öll tæki frá 2020. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi með upphengdu salerni, walkin sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, skolvaskur með lítilli innréttingu undir og góðum skápum með speglum fyrir ofan. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara inná baði. Flísar á gólfi og fíbó strespó plötur á veggjum.
Lokuð sameign þar sem er sér 5,6 fm geymsla. Þvottahús og hjólageymsla í sameign.
Hússjóður 42.313kr- á mánuði.
Sérmerkt bílastæði og hleðslustöðvar á bílaplani.

Góð staðsetning sem er orðin mjög miðsvæðis í höfuðborginni, örstutt í verslun Krónunnar og Bónus, bakarí og almenna þjónustu. Stutt í skóla.

Nánari upplýsingar veita:
Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 8233022 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.