Stangarholt 16, 105 Reykjavík (Austurbær) 93.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð og kjallari
5 herbergi
107 m2
93.900.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1950
  • Brunabótamat 49.350.000
  • Fasteignamat 78.050.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

EIGNIN ER SELD OG KOMIN Í FJÁRMÖGNUNARFERLI.

Flott og vel skipulögð 120,4m², 5 herbergja,  hæð + kjallari á vinsælum og eftirsóttum stað í Reykavík.
Birt stærð skv. HMS er 107,8m². Unnið er í nýrri skráningu og verður ný birt stærð 120,4m2. 

* Mikið endurnýjuð
* Möguleiki á auka íbúð á neðri hæð
* Góð staðsetning, miðsvæðis í Reykjavík og stutt á stofnbraut. Í göngufæri við skóla, verslanir og þjónustu.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]
Edwin Árnason, Lgf. í síma: 893 2121 eða [email protected]


Eigninni hefur verið vel viðhaldið og mikið endurnýjuð á síðastliðnum árum að utan sem innan.   Þak endurnýjað 2020, skipt um járn, pappa og rennur  og þakkantur steyptur upp.  Skipt um frárennslislagnir, neyslu- og hitalagnir í kjallaragólfi endurnýjaðar og lagnagrind endurnýjuð 2022. Nýtt baðherbergi á neðri hæð 2024.
  
Lýsing: 
Efri hæð skiptist í forstofu, stofu, tvö herbergi, baðherbergi og eldhús. 

Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi,  helluborði, ofni og háfi. Rúmgott með stórum gluggum.
Stofa:  Stofan er rúmgóð og björt, myndar opið rými með eldhúsi og borðstofu, harðparket á gólfi.
Herbergi #1:  Rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Herbergi #2:  Gott herbergi, harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt, vaskur, baðkar/sturta, veggskápar. Upprunalegt terrazzo-gólf.
Þvottahús:   Sér þvottahús er í kjallara. 
Neðri hæð skiptist í tvö herbergi, baðherbergi, forstofu, þvottahús og geymslur
Herbergi #1:  Gott rými fyrir svefnherbergi eða stofu. Harðparket á gólfi.
Herbergi #2:  Gott og bjart með harðparketi. Búið að leggja lagnir fyrir lítið eldhús í annan hluta þess.
Baðherbergi:  Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni og sturta. Tengi fyrir þvottavél.
Forstofa: Harðparket á gólfi og lítil geymsla/fatahengi undir stiga á milli hæða.
Geymsla #1: Snyrtileg geymsla með hillum í sameign.
Geymsla #2: Snyrtileg og rúmgóð útigeymsla.

Garður er skjólgóður með nýrri girðingu með skjólveggjum til beggja enda. Garðinum er skipt á milli íbúða og sér hvor um sinn hluta.

Vinsæl staðsetning í miðbæ Reykjavíkur og stutt í alla helstu þjónustu, veitingastaði og verslanir.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Pálsson Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar..
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.