Freyjubrunnur 19, 113 Reykjavík (Grafarholt) 143.500.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á tveimur hæðum
6 herbergi
215 m2
143.500.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2013
  • Brunabótamat 101.590.000
  • Fasteignamat 133.900.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og vel skipulagt raðhús með bílskúr á vinsælum og fjölskylduvænum stað við Freyjubrunn 19, Úlfarsárdal.
Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning þar sem örstutt er í leikskóla, skóla, íþróttir og útivist.

* Aukin lofthæð
* Glæsilegt útsýni og rúmgóðar svalir
* 4 rúmgóð svefnherbergi og 2 baðherbergi
* Innbyggður bílskúr
* Fjölskylduvæn staðsetning
* Nýleg Timburverönd, nýlegur heitur pottur og frágrenginn garður
* Möguleiki á svefnherbergi 5
* Gólfhiti


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. Fasteignaskrá Íslands er 215,40 m2

Eignin skiptist í forstofu, bílskúr, 4 svefnherbergi, 2 baðherbergi, hol, baðherbergi, stigi, stofa, borðstofa, eldhús, þvottahús, skrifstofuhol og svalir.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Hol er með parket á gólfi. Útgengt út í bakgarð með rúmgóðum viðar-palli með skjólveggjum. Þar er stór heitur pottur frá Normex.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 1 er flísalagt með baðkar með sturtuaðstöðu, wc og innréttingu með handlaug og skúffum.
Stigi er teppalagður. Geymslurými er undir stiga.
Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu, rúmgóðu, opnu rými með fallegu útsýni, mikilli lofthæð og stórum gluggum. Parket á gólfi og útgengt út á skjólgóðar svalir til suðurs.
Eldhús er með innréttingu og stórri eyju. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. 
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi 2 er flísalagt með "walk-in" sturtu, upphengdu salerni og innréttingu með handlaug og skúffum. 
Skrifstofuhol er með parket á gólfi og opið með svefnherbergisgangi á efri hæð. Skráð sem geymsla á teikningu.
Þvottahús er rúmgott og flísalagt með innréttingu með skápum. Tengi fyrir þvottavél / þurrkara.
Bílskúr er innangengur úr forstofu. Skráður 29,50 m2.
Fyrir framan hús eru bílastæði og verönd með skjólveggjum.

Vel skipulögð fjölskyldueign með frábæru útsýni á vinsælum stað í Úlfarsárdal. Stutt að sækja leikskóla, skóla, íþróttir, útivist og sundlaug er líka á næsta leiti. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.