Grímsgata 4, 210 Garðabær 169.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herbergi
192 m2
169.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2024
  • Brunabótamat 116.730.000
  • Fasteignamat 116.200.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Mjög bjarta og fallega með þakíbúð með aukinni lofthæð í stofu, tvennum þaksvölum, tveimur bílastæðum í bílakjallara, 4 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, afar fallegt útsýni.

*** Aukin lofthæð ***
*** 2 Bílastæði í bílageymslu ***
*** Glæsilegt útsýni *** 
*** Laus við kaupsamning ***


Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Íbúð 504 er 5 herbergja íbúð á 5.hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Innan úr hjónaherbergi er baðherbergi. Birt stærð eignar er 192,6 fm og þar af er 23,8 fm geymsla og tvö stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin skilast fullbúin án gólfefna en á votrýmum eru flísar. Í eldhúsi fylgja vönduð eldhústæki frá AEG. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir eldhúsi. Í eldhúsi er vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju. Myndavéladyrasími. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS trésmiðju. Húsið er steinsteypt (efsta hæð CLT einingar) og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortnar náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir.
Sjá nánar um Urriðaholt: www.urridaholt.is. 


Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Símonarson löggiltur fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Anddyri: Í anddyri eru fataskápar, þaðan er gengið inn á gang.
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi. Innan úr hjónaherbergi er baðherbergi, upphengt klósett, baðkar með sturtuaðstöðu.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum, parket á gólfum.
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott, flísar á gólfi og veggjum, mjög stór sturta, innrétting og skápur. 
Stofa/borðstofa/eldhús: Hátt til lofts. Eru í opnu rými, frá stofu er gengið út á skjólgóðar svalir. Nett eyja skilur að eldhús og stofu. Eldhús skilast með tækjum og búnaði frá AEG, span-helluborði, blástursofni, uppþvottavél og innbyggðum kæliskáp. Viftur eru ýmist í efri skáp, nema þar sem eru vegg eða eyjuháfar frá Ormson. Allar viftur eru uppsettar með kolasíu
Þvottahús: Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílastæði: Eigninni fylgir jafnframt tvö bílastæði sérmerkt í lokuðum bílakjallara ásamt rúmgóðri sérgeymslu sem er 23,8 fm. Búið að gera ráðstafanir fyrir rafhleðslustöð.
Sameign: Sérstaklega glæsileg lóð, snyrtileg með gróðri. Lyfta er í stigagangi hússins.  Kársnesið er í mikilli sókn og hefur uppbygging og þjónusta í hverfinu aukist verulega. Mikið er af göngu- og hjólaleiðum, þar eru góðar tengingar við stofnbrautir. 

Húsið eru vel staðsett steinsnar við Urriðaholtsskóla, sem er grunn- og leikskóli hverfisins. Einn besti golfvöllur landsins (Oddur) er í göngufæri og sömuleiðis útivistarsvæðin í Heiðmörk, Vífilstaðarhrauni og við Urriðavatn. Efst á Háholti er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og þjónustu s.s verslun, heilsugæslu, skólum og íþróttamannvirkjum.

Fylgdu mér á  Instagram og Facebook til að fá nýjustu upplýsingar um eignir til sölu og aðrar nytsamlegar upplýsingar um fasteignamarkaðinn. Vantar þig hjálp við að finna eign kíktu á https://verdmatfasteigna.is/vid-hjalpum-ther-ad-finna-draumaeignina/ Viltu vita hvers virði þín eign er ? www.verdmatfasteigna.is

Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.