Boðaþing 14, 203 Kópavogur 94.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herbergi
100 m2
94.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2018
  • Brunabótamat 66.200.000
  • Fasteignamat 75.800.000
Opið hús: 03. febrúar 2025 kl. 12:15 til 12:45.

Opið hús: Boðaþing 14, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 05 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 3. febrúar 2025 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Palsson Fasteignasala kynnir:

 Glæsileg og björt 2ja herbergja penthouse útsýnisíbúð fyrir 50 ára og eldri á 5. hæð í vönduðu lyftuhúsi við Boðaþing 14, Kópavogi. Afar fallegt útsýni er úr eigninni og eru 34m2 þaksvalir sem hafa að hluta verið yfirbyggðar.

** Stórkostlegt útsýni yfir Elliðavatn og til fjalla
** Yfirbyggðar þaksvalir sem ekki eru í fermetratölu
** Fyrir 50 ára og eldri
** Laus við kaupsamning


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignarinnar skv. Fasteignaskrá Íslands er 100,3m2, þar af geymsla 7,9m2.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu sem staðsett er í sameign.

Nánari lýsing:
Af lyftugangi er komið inn í sameiginlegt 5,7m2 anddyri með íbúð 501. Teppi á gólfum. 
Forstofa er með góðum forstofuskáp og myndavéladyrasíma. Harðparket á gólfum.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með útgengi út á 34m2 suður þaksvalir sem eru að hluta yfirbyggðar.  Úr stofu og þaksvölum er einstaklega fallegt útsýni. Harðparket á gólfum í stofu. 
Eldhús er opið inn í stofu með fallegri innréttingu, eyju, bakaraofni og háfi. Harðparket á gólfum. 
Svefnherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi og stórum glugga með glæsilegu ú. Harðparket á gólfum. 
Baðherbergi er rúmgott með fallegri innréttingu, hvítur veggskápur, sturta með góðu aðgengi, upphengdu salerni, handklæðaofn, gólfhiti, flísalagt í hólf og gólf. 
Þvottaherbergi er innan íbúðar og er rúmgott með góðri innréttingu og vinnuborði, vaskur, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfum. 
Geymsla, 7,9m2, er í sameign. Málað gólf og hillur.
Í sameign er sameiginleg vagna- og hjólageymsla. 

Athygli er vakin á því að nokkrar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni þar sem eignin er tóm.

Boðaþing 14, íbúð merkt 0502, hentar vel þeim sem vilja njóta stórkostlegs útsýnis yfir ósnortna náttúruna í vönduðu og góðu lyftuhúsi. Örstutt er í fjölbreytta þjónustu fyrir eldri borgara hjá Hrafnistu Boðaþingi, s.s hádegismat, félagstarf og innisundlaug.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.