Gnoðarvogur 32, 104 Reykjavík (Vogar) 54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herbergi
64 m2
54.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1958
  • Brunabótamat 31.650.000
  • Fasteignamat 49.500.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN 

Falleg tveggja herbergja íbúð á 4. hæð (efstu hæð) í fjölbýlishúsi við Gnoðarvog í Reykjavík.

* Mikið endurnýjuð eign
* Frábær staðsetning - fallegt útsýni til austurs, vesturs og norðurs.
* Góð fyrsta eign
* Vel viðhaldið hús


Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 [email protected]
Páll Pálsson, Lgf, 7754000, [email protected]  
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 


Nánari lýsing;
Gengið inní forstofu sem tengir saman önnur rými íbúðarinnar.
Eldhúsið er á vinstri hönd með flísum á gólfi.  Fallegt útsýni úr borðkróki. Fín eldri innrétting með bakaraofni og helluborði. Í eldhúsinu er pláss fyrir einfaldan ísskáp, uppþvottavél og þvottavél.
Stofan er björt með útgengi á vestursvalir, parket á gólfi.
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísalagt með snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla í kjallara, 5,1 m².  Sameiginlegt þvotta-, þurrkherbergi og hjólageymsla í kjallara.   

Glæsilegt útsýni er úr öllum rýmum íbúðinnar.

Ástand fjölbýlishússins er gott en árið 2017 var farið í veigamiklar framkvæmdir á húsinu að utan (þak, gluggar, múrviðgerðir).

Góð staðsetning á grónum og eftirsóttum stað. Stutt í almennar samgöngur, verslun og þjónustu.



Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.