Urriðaholtsstræti 28, 210 Garðabær 114.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herbergi
150 m2
114.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2019
  • Brunabótamat 88.590.000
  • Fasteignamat 108.700.000
Opið hús: 03. apríl 2025 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Urriðaholtsstræti 28, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. apríl 2025 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Virkilega björt og falleg fjölskylduíbúð í nýlegu húsi við Urriðaholtsstræti.

* Fjögur svefnherbergi 
* Baðherbergi ásamt gestasalerni
* Svalir til suðurs
* Stæði í bílakjallara
* Byggt 2019


EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!

Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 


Eignin er björt og rúmgóð og skiptist í forstofu, stofu og eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi með þvottahúsi innaf, gestabaðherbergi og svalir. Sér geymsla í sameign. Stæði í bílakjallara. Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 150,3 m². 

Nánari lýsing: 
Anddyri er með parket á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús er með parket á gólfi. Eldhústæki eru frá Electrolux, uppþvottavél, ofn, ísskápur, spanhelluborð og gufugleypir, opið við alrými. Útgengt út á suður svalir sem eru mjög skjólsælar.
Stofan myndar eitt stórt rými með eldhúsinu, virkilega skemmtileg flæði og frábært útsýni úr gluggum úr stofu. 
Hjónaherbergi er 13,4 fm. Parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 2 er 10,1 fm. Parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 3 er 10,4 fm. Parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 4 er 10 fm. Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi er með hreinlætistæki frá Grohe. Sturtutæki eru hitastýrð, upphengt salerni. Rúmgóð sturta með flísalögðum botni í gólfi og hertu sturtuglers skilrúmi. Baðherbergis og þvottahúsgólf eru flísalögð sem og veggir að hluta. Aðrir veggir í baðherbergjum og þvottaherbergjum eru málaðir í ljósum lit. Í sturtum eru niðurföll riðfríar ristar.
Þvottahús er innaf baðherbergi, í þvottahúsi eru tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Innrétting er í þvottahúsi.
Geymsla er 7,4 fm. Í sameign á 1. hæð.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg á 1. hæð.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

Aðkoma að húsi er hellulögð og snjóbræðsla þar sem við á samkvæmt lagnateikningum. Aðalinngangur er frá 2. hæð en aðkoma að bilakjallara er frá Brekkugötu.
Gólf eru parketlögð harðparketi frá Parka ehf.  Gólf í baðherbergjum og þvottahúsum eru flísalögð. Allir veggir og loft innan íbúða eru sandsparlaðir og málaðir í ljósum lit, innveggir aðrir en steyptir eru hlaðnir úr H+H hleðslusteini  málaðir í ljósum lit.  Þess má geta að H+H er margverðlaunað efni sem er myglufrítt og með mikla hljóðeinangrun milli rýma  og með mikið brunaþol.
Burðakerfi hússins er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með vönduðum álklæðningum frá Áltak, einnig er 1 og 5 hæð með flísaklæðningu sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Allir gluggar eru úr Ál/tré kerfi frá Rationel og glerjaðir með einangrunargleri.
Innréttingarnar eru af vandaðri gerð frá GKS innréttingum, framleiðandi er Nobilia í þýskalandi.

Byggingaraðili hússins er Þarfaþing ehf sem er 26 ára gamalt fyrirtæki og hefur því áralanga reynslu af framkvæmdum fyrir opinbera aðila, fyrirtæki og einstaklinga. Fyrirtækið leggur áherslu á vandaðar íbúðir, góða þjónustu og skil íbúða á réttum tíma.

Glæsileg íbúð fyrir vandláta. Heiðmörkin og gönguleiðir um allt. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og útivistarsvæði.


Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.