Lundarbrekka 12, 200 Kópavogur 69.800.000 Kr.
Fjölbýli
5 herbergi
101 m2
69.800.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1970
  • Brunabótamat 52.300.000
  • Fasteignamat 63.750.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Pálsson fasteignasala og Edwin Árnason lgf,  kynna til sölu.

Falleg fimm herbergja 101,6 fm íbúð á 1. hæð við Lundarbrekku 12 í Kópavogi.  Íbúðin er skráð 101,6 fm skv. FMR,  þar af er 9,6 fm herbergi á jarðhæð.  Möguleiki er að nýta herbergi á jarðhæð til útleigu þar sem aðgengi er að salerni í sameign. Einnig er umþb. 6 fm geymsla á jarðhæð sem ekki er inn í heildarfermetratölu,

* Íbúðin var að mikið endurnýjuð 2019-2020
* Tvennar góðar svalir, til suðurs og norðurs
* Stutt í Leikskóla og skóla
* Merkt bílastæði
* Vinsæl staðsetning

Nánari upplýsingar veita:
Edwin Árnason, Lgf. í síma: 893-2121 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma: 775-4000 eða [email protected]


Eignin skiptist í:  Forstofu og hol, rými með stofu og borðstofu, þrjú herbergi, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:
Gólfefni: 
Ljóst parket er á alrými og eldhúsi, eikarparket á herbergjum og flísar á votrýmum.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð, parket á gólfi, útgengt út á á norðursvalir. 
Eldhús: Eldhúsið er hálfopið að holi og var endurnýjað 2020,  falleg hvít innrétting, gott skápapláss og borðkrókur, innangengt í þvottahús með rennihurð.
Hjónaherbergi:  Rúmgott hjónaherberg með útgengi út á suður svalir.
Svefnherbergi: Gott herbergi með stórum fataskáp, nýtt sem fataherbergi. 
Svefnherbergi2: Gott herbergi án skápa 
Baðherbergi: Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, hvít innrétting og speglaskápur, baðkar með sturtu, handklæðaofn og upphengt salerni. Gler og opnanlegt fag frá 2019.
Þvottahús: Innangegnt í rúmgott þvottahús frá eldhúsi, flísar á gólfi. 
Geymsla: Geymsla umþb. 6fm. er á jarðhæð. Geymslan er ekki inni í heildarfermetratölu.
Herbergi á jarðhæð: Rúmgott herbergi með aðgang að sameiginlegu salerni, gluggi endurnýjaður 2019.

Húsið lítur vel út og sameign snyrtileg, sameiginleg vagna- og hjólageymsla ásamt læstum skápi í sameign. Barnvænt hverfi, þar sem stutt er í leikskóla, skóla, verslanir og ýmsa þjónustu.

- 2020 var eldhúsið mikið endurnýjað, sett var nýtt gólfefni í alrými og nýjar hurðir innan íbúðarinnar
- 2019 var skipt um gler og opnanleg fög á baðherbergi, að hluta í stofurými, sem og í herbergi á jarðhæð.  
- 2018 var þakið málað.
- 2019 fóru fram múrviðgerðir á húsinu og það málað.

******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****
*****www.eignavakt.is*****


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Pálsson Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar..
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 76.880 kr. m.vsk.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.