Boðaþing 14, 203 Kópavogur 74.900.000 Kr.
Fjölbýli
2 herbergi
90 m2
74.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2018
  • Brunabótamat 54.700.000
  • Fasteignamat 66.400.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu lyftuhúsi fyrir 50 ára og eldri við Boðaþing.  Fallegt útsýni yfir ósnortna náttúru til suðurs og stutt í þjónusumiðstöð Hrafnistu þar sem hægt að sækja í ýmsa þjónustu og félagslíf og náttúruperlur Elliðavatns og Heiðmerkur.

Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. Þjóðskrá Íslands er 90,8 fm, þar af geymsla 7,5 fm.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, sérþvotthús og geymslu í sameign. 

Nánari lýsing:
Forstofa er með fataskáp.
Eldhús með ljósri innréttingu og dökkri borðplötu, bakaraofni í vinnuhæð, vaski, eyju með helluborði og háfi. Stæði fyrir uppþvottavél. Parket á gólfum.  
Stofa/borðstofa er rúmgóð með parket á gólfum og útgengi á svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum skápum. Parket á gólfum.
Baðherbergi með ljósri innréttingu og dökkri borðplötu, upphengt salerni, "walk-in sturta". Gólf eru flísalögð og hluti veggja í u.þ.b. 2,20 metra hæð.
Þvottahús er með borðplötu og skolvaski. Flísar á gólfi.
Geymsla, 7,5m2, er í sameign húsins.

Boðaþing 14 er staðsett í rólegu og vel skipulögðu hverfi í Kópavogi sem hentar einstaklega vel fólk á besta aldri. Göngufæri er í verslanir, apótek og aðra þjónustu, auk þess sem góðar almenningssamgöngur eru í boði. Í hverfinu eru margar fallegar gönguleiðir og nálægð við útivistarsvæði sem bjóða upp á kyrrð og hreyfingu í fallegu umhverfi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.