Vinastræti 6, 210 Garðabær 92.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herbergi
118 m2
92.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2019
  • Brunabótamat 73.850.000
  • Fasteignamat 88.900.000
Opið hús: 12. maí 2025 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Vinastræti 6, 210 Garðabær, Íbúð merkt: 02 03 09. Eignin verður sýnd mánudaginn 12. maí 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð í vönduðu lyftuhúsi vel staðsett í Urriðaholtinu. Mjög gott útsýni er úr íbúðini og stutt er í alla helstu þjónustu m.a. skóla, leikskóla og útivistarsvæði.

** 3 svefnherbergi
** Frábært útsýni
** Stæði í bílakjallara


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. Þjóðskrá Íslands er 118,2m2. þar af geymsla 18,6m2

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Nánari lýsing
Forstofa með góðum fataskáp. Parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Nobilia (GKS), ofn í vinnuhæð. innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er í opnu og fallegu rými með útgengi út á svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, sturtu og handklæðaofni, flísar á veggjum að hluta og á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og flísum á gólfi.

Geymsla er í sameign og er 18,6m2.
Bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara og er með tengingu fyrir bílahleðslustöð.
Hjóla og vagnageymsla er í sameign.
 
Húsið er afar vandað og frágangur með besta móti. Húsið er álklætt og einangrað að utan og er byggt af ÞG verktökum.

Um hverfið
Íbúðin er staðsett á besta stað í Urriðaholti, alveg við grunnskólann og leikskólann Urriðaholtsskóla ásamt Vinagarði sem er stór almenningsgarður. Því eru næg leiksvæði fyrir krakka og útivistarsvæði fyrir fullorðna m.a. ærslabelgur, gervigrasfótboltavöllur í fullri stærð, körfuboltavellir og útiæfingaaðstaða ásamt skólalóð skólans. Von er á að þriðji og síðasti áfangi grunnskólans sem inniheldur íþróttahúsið og sundlaugina verði tilbúið vorið 2026. Í næsta húsi er einnig hverfiskaffihúsið Dæinn. Húsfélagið í Vinastræti 2-16 er afar öflugt og vel rekið.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.