Skaftahlíð 15, 105 Reykjavík (Austurbær) 84.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herbergi
109 m2
84.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1946
  • Brunabótamat 50.300.000
  • Fasteignamat 79.650.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Björt og hugguleg 5 herbergja hæð í vel viðhöldnu fjórbýlishúsi við Skaftahlíð 15, Reykjavík

* Glæsilegt útsýni
* 4 svefnherbergi og rúmgóð stofa
* Endurnýjað baðherbergi og eldhús að hluta


Endurnýjun sl. ár tiltelur ma. :
2023 var skólp frá húsi endurnýjað.
2015 ca. var húsið málað.
2008 voru gluggar í íbúð á suður, norður og austurhlið endurnýjaðir
1999 var dregið var nýtt rafmagn í íbúðina.
1995 ca. var endurnýjað þakjárn og þakrennur 

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. FÍ er 109,00 m2, eignin er að hluta undir súð svo nýtanlegir gólf-fermetrar eru fleiri. Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 84.850.000 kr.

Samkv. teikningu var breyting gerð á íbúðinni 1981 þar sem settur var kvistur í eldhús, gerðar svalir og baðherbergi fært.

Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svalir, baðherbergi, 4 svefnherbergi, geymsluskápur og geymsluloft.
Stigapallur á efstu hæð nýtist vel fyrir fatahengi.
Hol er með viðarparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með viðarparket á gólfi. Fallegt útsýni og stór gluggi.
Eldhús er flísalagt með U-laga innréttingu. Tengi fyrir uppþvottavél, bakarofn, helluborð og bjartur borðkrókur.
Útgengt út á svalir til suðurs.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, rúmgóðri innréttingu með handlaug og skápum. Tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og þar er geymsluskápur.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi, nýtt sem sjónvarpshol í dag.
Geymsluloft er yfir íbúðinni, aðgengilegt úr holi.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús. 

Stór sameiginlegur og vel gróinn garður. 

Stutt í skóla og alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina. Klambratún í allra næsta nágrenni, þar er stórt útivistarsvæði ásamt Kjarvalsstöðum og kaffihúsi.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.