Ingólfsstræti ( aukaíbúð ) 7A, 101 Reykjavík (Miðbær) Tilboð
Parhús
5 herbergi
120 m2
Tilboð
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1896
  • Brunabótamat 61.250.000
  • Fasteignamat 118.600.000
Opið hús: 03. júlí 2025 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús: Ingólfsstræti ( aukaíbúð ) 7A, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 3. júlí 2025 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Hlýlegt parhús með aukaíbúð og miklum karakter við eignarlóð við Ingólfsstræti 7A
Eignin er á þremur fastanúmerum en skiptist í tvær íbúðir í dag. Annars vegar hæð og ris íbúð með 3 svefnherbergjum og hinsvegar 2ja herbergja íbúð á jarðhæð.

* Skjólgóð verönd og vel gróinn garður
* 2021 var baðherbergi endurnýjað að miklum hluta
* 2010 voru raflagnir og ofnalagnir endurnýjaðar ásamt ofnum
* 2017 voru þakrennur endurnýjaðar
* Aðalíbúð laus við kaupsamning og jarðhæð er í útleigu


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar samkv. Fí er samtals 120,1 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2026 er kr 131.200.000,-

Hæðirnar þrjár eru á þremur aðskildum fastanúmerum og stærðir eru eftirfarandi :
F200-4529 - íbúð 0001 - 35,00 m2
F200-4530 - íbúð 0101 - 51,30 m2
F200-4531 - íbúð 0201 - 33,80 m2

1. hæð og ris :
Eignin skiptist í anddyri, gestasalerni / þvottahús, stofu, borðstofu, eldhús, stiga, 3 svefnherbergi og baðherbergi.
Anddyri er flísalagt og þar er gestasalerni til hægri með salerni og tengi fyrir þvottavél. 
Stofa eru með parket á gólfi og opnar að hluta með eldhús. 
Hlaðinn steinveggur í miðju rýmis gefur mikinn karakter.
Eldhús er með innréttingu með uppþvottavél, eldavél og rúmgóð borðstofa.
Stigi leiðir upp í hol og 3 svefnherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu salerni, baðkari og handlaug.

Íbúð á jarðhæð :
Eignin skiptist í alrými( eldhús, stofu, anddyri ), baðherbergi og svefnherbergi. 
Gengið er inn í opið anddyri með eldhús og stofu. Nýleg eldhúsinnrétting með eldavél og grár flísar á gólfi þeim megin.
Stofa er þar einnig, afmörkuð með parket á gólfi. Svefnherbergi er með flotuðu gólfi. Baðherbergi er með flísalagri "walk-in" sturtu, handlaug, salerni og baðkari. 

Fyrir utan húsið er skjólgóður og vel gróinn garður. Hellulagður göngustígur leiðir í báðar íbúðir. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.