Hverafold 66, 112 Reykjavík (Grafarvogur) 148.600.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á tveimur hæðum
6 herbergi
175 m2
148.600.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1987
  • Brunabótamat 87.450.000
  • Fasteignamat 116.700.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fjölskylduvænt 6 herbergja einbýlishús í rólegum botnlanga með einstaklega fallegum og skjólsælum garði við Hverafold 66 í Grafarvogi
Við kynnum til sölu bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum með rúmgóðum bílskúr í grónu og barnvænu hverfi Grafarvogs. Húsið stendur innst í botnlanga þar sem næði og ró eru í fyrirrúmi. Eignin hefur fengið gott viðhald og garðurinn er einstaklega fallegur og snyrtilegur - lokaður allan hringinn með skjólveggjum, með stórum timburpalli og tveimur geymsluskúrum. 

Fyrir nánari upplýsingar :
Tinna Bryde Lgf. í síma 660-5532 eða [email protected]

-  Frábær staðsetning í rólegu umhverfi í botnlanga
-  Glæsilegur garður með stórum timburpalli og tveimur geymsluskúrum
-  5 svefnherbergi og 2 baðherbergi 
-  Rúmgóður bílskúr með heitu/köldu vatni og sjálfvirkum hurðaopnara


Neðri hæð:
Forstofa: Flísalögð með góðu plássi fyrir fataskápa.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, skápur undir vaski og sturtuklefi.
Þvottahús: Rúmgott með flísum á gólfi og geymslu innaf (um 8 fm).
Eldhús: Endurnýjað 2024 með góðri innréttingu, innbyggðum ofni, örbylgjuofni og uppþvottavél. Gluggar á tvo vegu gefa góða birtu. Korkur á gólfi frá Þ. Þorgríms. 
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi, útgengi út á stóran timburpall.
Herbergi: Nýtt sem sjónvarpsherbergi í dag með parketi á gólfi.

Efri hæð:
Fjögur svefnherbergi: Stærðir 8–13 fm með parketi á gólfum, útgengt úr einu herbergjanna á suðursvalir.
Baðherbergi: Endurnýjað 2023, með vandaðri innréttingu, baðkari og sturtugleri. Vínylflísar á gólfi. 
Sjónvarpshol: Með parketi á gólfi.
Geymsluloft: Stórt og gott geymsluloft. 

Bílskúr:
Byggður 2000, rúmgóður með heitu/köldu vatni, innréttaður með geymsluplássi og sjálfvirkum hurðaopnara.

Garður og aðstaða:
Fallega hannaður og lokaður garður með skjólveggjum allan hringinn sem gerir hann bæði skjólsælan og einstaklega notalegan. Stór timburpallur býður upp á frábært rými fyrir fjölskyldu og gesti. Á lóðinni eru tveir geymsluskúrar, ca. 15 fm og ca. 5 fm. Heimreið og bílaplan eru tilbúin undir snjóbræðslu og hellulögn.

Viðhald og endurbætur:
Húsið og þak málað 2025
Eldhús endurnýjað 2024
Baðherbergi á efri hæð endurnýjað 2023
Parket frá Birgisson 2020 

Staðsetning:
Hverafold 66 er í rólegum botnlanga í Grafarvogi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og alla helstu þjónustu. Svæðið er fjölskylduvænt með góðum göngu- og hjólastígum. Göngustígur liggur bakvið húsið og leikvöllur er við lóðarmörkin.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.