Hraunbær 57, 110 Reykjavík (Árbær) 117.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
6 herbergi
166 m2
117.900.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1967
  • Brunabótamat 84.920.000
  • Fasteignamat 98.400.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og vel skipulagt parhús með bílskúr á vinsælum stað í Árbænum.

BÓKIÐ EINKASÝNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA PÓST Á [email protected]

* Frábær fjölskyldueign
* 3-4 svefnherbergi
* Stór sólskáli
* Bílskúr


EIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!

Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 


Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 166,8 m2. þar af er bílskúr skráður 20,2 m2. 

Eignin telur 3-4 svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu og bílskúr.

Nánari lýsing:
Snyrtileg aðkoma er að húsinu um sameiginlegan inngarð. Snjóbræðsla er í gangstétt framan við húsið.
Forstofa með flísum á gólfi.
Svefnherbergi 1 er staðsett út frá forstofu með góðum glugga. Parket á gólfi. 
Gestasnyrting með salerni, handlaug og opnanlegum glugga.
Úr forstofu en gengið inn í bjart miðrými hússins sem nýtist vel sem sjónvarpshol. Úr holi er gengið inn í önnur rými hússins.
Eldhús hefur verið endurnýjað. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, rými fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur.
Stofa/borðstofa myndar opið og bjart rými með góðum gluggum og parket á gólfi. Útgengt er í stóran sólskála sem nýtist mjög vel og stækkar rými hússins mikið. Úr sólskála er útgengi í garð sem er girtur af með skjólveggjum. 
Herbergi 2 (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Herbergi 3 er sömuleiðis rúmgott. Á upprunalegri teikningu voru þetta tvö herbergi.  Auðvelt væri að breyta aftur til fyrra horfs og vera þá með 4 svefnherbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, sturtuklefa og innréttingu með handlaug. Góður, opnanlegur gluggi. 
Þvottahús/geymsla með flísum á gólfi, útgönguhurð og opnanlegur gluggi.
Bílskúr (20,7 fm) er staðsettur í bílskúrslengju. Fyrsti bílskúr frá inngangi hússins. Gluggar á bakhlið.

Eign með mikla möguleika og hentar vel fyrir fjölskyldufólk. Frábærlega staðsett eign í Hraunbæ sem er í miðpunkti höfuðborgarsvæðisins þar sem stutt er í stofnbrautir og örstutt í fjölbreytta verslun og þjónustu. Þá stutt er í leik og grunnskóla, íþróttaaðstöðu og heilsugæslu. 


Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.