Vitastígur 3, 220 Hafnarfjörður 68.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herbergi
76 m2
68.000.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1945
  • Brunabótamat 40.750.000
  • Fasteignamat 51.750.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Björt og sjarmerandi 76,7 fm íbúð á aðalhæð við Vitastíg 3 í hjarta Hafnarfjarðar. Eignin tilheyrir vel viðhöldnu tvíbýlishúsi sem hefur hlotið góða endurnýjun á undanförnum árum. Aðgangur er að sameiginlegu þvottahúsi og geymslu í kjallara. Húsið stendur á einstaklega góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.

Vakin er athygli á því að báðar íbúðir hússins eru til sölu og er mögulegt að kaupa þær saman eða hvora fyrir sig.

**Þak, gluggar og klæðning endurnýjuð 2024
**Tvö svefnherbergi
**Frábær staðsetning í miðbæ Hafnarfjarðar

Fyrstu kaupendur eiga möguleika á allt að 90% fjármögnun, skv. reglum viðkomandi lánastofnana.


Birt stærð eignar samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 76,7 fm, þar af er geymsla 12,9 fm.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson lgf. S: 775-4000 [email protected]
Þorbirna Mýrdal Löggiltur fasteignasali S: 888-1644 [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist í sameiginlega forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. 12,9 fm geymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi er staðsett í kjallara. 

Nánari lýsing á eign:
Gengið er inn í forstofu og hol um sameiginlegan inngang. Fataskápur og flísar á gólfi.
Í eldhúsi er falleg ljósbrún viðarinnrétting með miklu skápaplássi. Gott pláss fyrir eldhúsborð. Flísar á milli efri og neðri skápa, harðparket á gólfi.
Björt og rúmgóð stofa. Harðparket á gólfi.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt. Baðkar með sturtuaðstöðu. Handlaug og upphengt salerni.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og geymsla sem gengið er í að utanverðu.

Samkvæmt upplýsingum seljenda var húsið einangrað að utan og klætt báruáli árið 2024. Þakjárn var endurnýjað, strompur klæddur og allir gluggar/gler endurnýjaðir (að undanskildum gluggum í kjallara). Lagnir og ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta. Á árinu 2024 var rishæðin tekin í gegn: nýtt baðherbergi, ný eldhúsinnrétting, ný gólfefni, ofnar endurnýjaðir og allt málað.

Húsið lítur einstaklega vel út, bæði að utan og innan. Þetta er falleg og vel við haldin eign á vinsælum stað í Hafnarfirði sem vert er að skoða.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.