Lágaleiti 15, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal) 66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herbergi
60 m2
66.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2020
  • Brunabótamat 46.860.000
  • Fasteignamat 60.250.000
Opið hús: 09. desember 2025 kl. 12:15 til 12:45.

Opið hús: Lágaleiti 15, 103 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 02 07. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 9. desember 2025 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Palsson Fasteignasala kynnir:

-Nýleg íbúð, byggingarár 2020
-Stæði í bílakjallara
-Yfirbyggðar svalir
-Góð staðsetning og gott útsýni


Flott íbúð á annarri hæð, sem er jafnframt efsta hæð í þessum hluta.
Íbúðin er merkt 207, tveggja herbergja og 60,5 fm samkvæmt HMS.
Hún er parketlögð með harðparketi, nema baðherbergi sem er flísalagt.
Eign sem er mjög miðsvæðis þegar kemur að öllu höfuðborgarsvæðinu.
Einkastæði í bílakjallara, þvottaaðstaða innan íbúðar og rúmgott opið alrými.

Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma nr 775-4000 / [email protected]
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / [email protected]

Lýsing íbúðar:

Gengið er inn í forstofu með innfelldum fataskáp.
Alrými er parketlagt með harðparketi, stórt og bjart með gólfsíðum gluggum og rúmar vel stofu og borðstofu. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir með góðu útsýni í vesturátt.
Eldhúsið er með stílhreinni ljósri innréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og vatnsálagsveggjum með ljósum flísum. Útbúið ljósri vaskinnrétting með skúffum og fyrir ofan er speglaskápur. Einnig er handklæðaofn, upphengt salerni og walk-in sturta.
Þvottaaðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er inn á baðherbergi.
Svefnherbergi er rúmgott, parketlagt með harðparketi og með góðu skápaplássi.
Bílastæði í bílakjallara með tengi fyrir hleðslustöð.

Sérgeymsla í sameign. Skráð 11,9 fm.
Tvær sameiginlegar hjólageymslur.
Nýleg eign, vel staðsett í Reykjavík þar sem öll þjónusta er í næsta nágrenni.
Kringlan, Borgarleikhúsið og Heilsugæsluna Efstaleiti öll í göngufæri.
Einnig stutt í helstu náttúru borgarinnar, Öskjuhlíð og Nauthólsvík.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.