Eskihlíð 10, 105 Reykjavík (Austurbær) Tilboð
Fjölbýli
2 herbergi
46 m2
Tilboð
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1957
  • Brunabótamat 22.050.000
  • Fasteignamat 41.000.000
Opið hús: 19. desember 2025 kl. 12:15 til 12:45.

Opið hús: Eskihlíð 10, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 02. Eignin verður sýnd föstudaginn 19. desember 2025 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð og björt íbúð á jarðhæð í góðu húsi við Eskihlíð 10

* Frábær fyrstu kaup - Möguleiki á 90% fjármögnun
* Laus til afhendingar
* Endurnýjað parket


Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a.:
2023 var þak málað
2022 voru gluggar yfirfarnir á framhlið hússins (austurhlið).
2020 voru endurnýjaðar frárennslislagnir frá húsinu, bílaplan endurnýjað, ný hellulögn og sett snjóbræðsla í tröppur og gangstétt. Settar upp rafhleðslustöðvar hjá bílastæðum.
2016 var húsið múrviðgert og steinað.
2011 voru gler og gluggar endurnýjaðir á bakhlið hússins (vesturhlið) og svalahandrið endurnýjuð.
2010 var þak endurnýjað, skipt um járn og pappa.
Einnig er búið að endurnýjað rafmagnstöflur fyrir bæðir stigahúsin.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. FÍ er 46,50 m2 og fyrirhugað fasteignamat 2026 er 44.350.000 kr. 

Eignin skiptist í stofu / borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi og opin með eldhúsi.
Eldhús er með U-laga innréttingu, bakarofn, helluborð og vifta. 
Baðherbergi er flísalagt með salerni, innréttingu með handlaug og skápum og sturtuklefa.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Geymsla er innan íbúðar.

Í sameign er þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Stór, sameiginleg lóð. Framlóðin er öll endurhönnuð á fallegan máta og nægt af bílastæðum, garður á bakvið hús.
Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í miðbæinn og út á helstu stofnæðar Reykjavíkur.  Einnig er stutt í skóla, leikskóla, heilsugæslu, sundlaug og matvöruverslun.
Falleg útivistarsvæði eru allt í kring m.a. Nauthólsvík, Öskjuhlíð og Klambratún.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.