Hörðaland 22, 108 Reykjavík (Austurbær) 69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herbergi
85 m2
69.900.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 1
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1969
  • Brunabótamat 44.750.000
  • Fasteignamat 74.400.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

-Góð staðsetning í Fossvoginum
-Stór garður
-Suðursvalir
-Laus strax


Íbúðin er skráð fjögurra herbergja og 85,6 fm samkvæmt HMS.
Hún er á miðhæð í sex íbúða stigagangi. Fá þrep eru upp frá anddyri upp að íbúð þar sem jarðhæðin er niðurgrafin.
Eignin hefur fengið gott viðhald á ytra byrði og ber þar helst að nefna:
-Nýlegir gluggar og svalahurð
-Steinn nýlega múrviðgerður og málaður
-Nýlegt þak

Íbúðin býður upp á marga möguleika.
-Hægt er að opna inn í eldhúsið til að skapa stærra alrými.
-Tvö barnaherbergi hafa verið sameinuð í eina betri stofu.
Einföld framkvæmd með einum millivegg endurvekur fyrri herbergisskipan.
Nóg af bílastæðum eru fyrir utan á bílaplani og komið hefur til umræðu að sérmerkja stæði fyrir íbúðir.

Ekki þarf að fara yfir götu til að sækja skóla sem er í göngufæri.

Íbúðin stendur tóm og er laus til afhendingar við kaupsamning.

Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 / [email protected]


Nánari lýsing íbúðar:
Gengið er inn í parketlagða forstofu sem tengist beint við hol.
Á vinstri hönd er bjart opið rými sem áður voru tvö barnaherbergi.
Á hægri hönd er gangur með góðu skápaplássi.
Inn af gangi er stórt og bjart hjónaherbergi, parketlagt með skápavegg.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og vatnsálagsstöðum. Útbúið baðkari með sturtuhaus, spegli með lýsingu, skápum, vask og salerni. Þar er einnig tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er parketlagt og með eldavél. Innrétting er hvít með rennihurðum, bæði efri og neðri skápar.
Stofa er stór og björt og parketlögð. Úr henni er útgengt út á stórar svalir sem snúa í suður með ágætis útsýni yfir garðinn og víðar.

Sérgeymsla er í kjallara.
Þar er einnig sameiginleg hjólageymsla, þvottahús og þurrkherbergi sem er vel viðhaldið og snyrtilegt.

Allt sem Fossvogsdalurinn hefur upp á að bjóða nánast í bakgarðinum - náttúra, útivist og leikvellir fyrir stóra og smáa.
Körfuboltavellir, frisbee golf, tennisvellir, strandblak, leikvellir, aparóla og fleira.
Elliðaárdalur einnig í göngufæri.

-Athygli er vakin á því að einhverjar myndir hafa verið sviðsettar með tölvutækni til þess að gefa kaupendum hugmynd að nýtingu rýmis þar sem eignin er tóm.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.